Farið var í vinnuferð í verkefninu EVEHD núna í júlí til Slóvakíu. Í ferðinni voru tveir blessaðir brunnar lagaðir en einnig var farið í rannsóknir á ávaxtatrjám. Þau voru mæld, kortlögð og skoðuð. Heitt var í veðri en það spilaði stóran þátt í verkefnunum og voru sjálfboðaliðar og starfsmenn voru mikið bitnir af moskítóflugum.
Verkefnið er samstarfsverkefni á milli 6 Evrópuþjóða: Íslands, Þýskalands, Slóvakíu, Tyrklands, Rúmeníu og Englands.
Samstarfsaðilarnir hafa sameiginlegan áhuga á því að virkja sjálfboðaliða í sögutengdum rannsóknum og/eða fornleifafræði: uppgrefti, verndun minja og endurbyggingu og/eða endurreisn heilagra og blessaðra brunna. Í hverju landi fór starfsmaður með sjálfboðaliðum til landanna sem eru í samstarfinu og unnu í verkefnunum sem voru lögð fyrir.
Náttúrustofa Vestfjarða | Aðalstræti 12 | 415 Bolungarvík | kt 610397 2209 | sími: 456 7005 | netfang: nave [hjá] nave.is