Náttúrustofa Vestfjarða býður upp á starfsnám fyrir háskólanema sem hafa áhuga á að öðlast verklega reynslu á sviði vistfræði og náttúrurannsókna. Starfsnámið er hluti af fræðilegu og faglegu starfi stofunnar og veitir nemendum innsýn í rannsóknir og verkefni sem tengjast náttúru Vestfjarða.
Vestfirðir bjóða upp á einstakt og afskekkt náttúruumhverfi þar sem fjölbreytt vistkerfi eru innan seilingar. Á svæðinu er einnig virkt og líflegt nemendasamfélag, auk þess sem starfsnemar fá aðgang að víðtæku tengslaneti sérfræðinga sem getur skapað framtíðartækifæri í námi og starfi.
Starfsnámið felur í sér handleiðslu og þjálfun í bæði vettvangsvinnu og á rannsóknastofu. Starfsnemar starfa með reynslumiklu teymi sérfræðinga og taka þátt í öflun gagna á vistkerfum og umhverfi. Á rannsóknastofu fá nemar verklega þjálfun og leiðsögn, meðal annars við greiningu og flokkun lífvera sem safnað er á vettvangi.
Starfsnemar fá innsýn í og taka þátt í fjölbreyttum verkefnum á sniðum náttúrufræða, eftir árstíma og verkefnastöðu, svo sem:
- Fuglarannsóknum og vöktun fuglastofna
- Gróðurrannsóknum og kortlagningu landvistkerfa
- Fiskirannsóknum og ferskvatnsvistfræði
- Sjávarrannsóknum
- Vettvangsvinnu, sýnatöku og úrvinnslu gagna
- Vinnu á rannsóknarstofu
Boðið er upp á starfsnám á einni af eftirfarandi önnum:
- Vorönn
- Sumarönn
- Haustönn
Starfsnámið er að jafnaði 3-4 mánuðir, en upphafstími getur verið sveigjanlegur og lagaður að þörfum umsækjenda eftir því sem kostur er.
Náttúrustofan getur útvegað húsnæði á svæðinu fyrir nema, en þeir bera hluta af leigukostnaði sjálfir.
Við viljum sérstaklega hvetja einstaklinga sem þegar eru búsettir á Vestfjörðum, til að sækja um.
Starfsnámið hentar nemendum á sviði:
- Líffræði
- Vistfræði
- Sjávarlíffræði
- Náttúruvernd
- Umhverfisfræða
- Lífvísinda almennt
Umsækjendur eru beðnir um að senda ferilskrá og stutt kynningarbréf þar sem fram kemur fræðilegur bakgrunnur, áhugasvið og óskað tímabil starfsnáms. Nánari upplýsingar og umsókn berist til nave@nave.is
Internship
The Nature Research Centre of the Westfjords offers internships for university students interested in gaining practical experience in ecology and environmental research. The internship forms part of the institute’s academic and professional activities and provides students with insight into research and projects related to the natural environment of the Westfjords.
The Westfjords offer a unique and remote natural setting where diverse ecosystems are within easy reach. The area also has an active and vibrant student community, and interns gain access to an extensive network of professionals that may create future academic and career opportunities.
The student will get the opportunity to go conduct fieldwork with an experienced team of professionals, collecting both ecological as well as environmental data in the marine environment. In the laboratory, the student will receive hands-on training and supervision, with the focus being mainly on identifying and classifying organisms collected out in the field. The student will also have the opportunity to experience a wide range of other natural science-related fieldwork.
Interns gain insight into and participate in a variety of natural science projects, depending on the season and ongoing research priorities, including:
- Bird monitoring
- Terrestrial vegetation studies
- Freshwater ecosystems assessments
- Marine and aquaculture related monitoring
- Fieldwork, sampling, and data processing
- Laboratory work
Internships are offered during one of the following semesters:
- Spring
- Summer
- Autumn
The internship typically lasts 3–4 months; however, start dates may be flexible depending on availability and the applicant’s needs.
The institute can arrange accommodation in the area for interns, but interns are responsible for covering part of the rental costs.
We particularly encourage individuals who are already based in the Westfjords to apply.
The internship is suitable for students in the fields of:
- Biology
- Ecology
- Marine Biology
- Conservation ecology
- Environmental Studies
- Life Sciences
- Animal Science
Applicants are requested to submit a CV and a short statement of interest outlining their academic background, research interests, and preferred internship period. Further information and applications should be sent to nave@nave.is
