Fyrir frekari upplýsingar, vinsamlegast hafið samband:
Sigurður Halldór Árnason
Forstöðumaður, Náttúrustofa Vestfjarða
sigurdur@nave.is
Fuglafræðingur
Náttúrustofa Vestfjarða auglýsir eftir metnaðarfullum og hæfum fuglafræðingi. Viðkomandi mun taka þátt í verkefnum á borð við umhverfismat, hefðbundnar vaktanir og sérhæfðar rannsóknir.
Til að byrja með mun viðkomandi takast á við verkefni sem notast við „Vantage Point Survey“ og ratsjá til að meta flugáhættu tengt fyrirhuguðu vindmyllugarði á Vestfjörðum.
Þetta er spennandi tækifæri til að hafa áhrif á þróun reglugerðar sem tengist umhverfisáhrifum notkunar vindmylla til raforku framleiðslu á Íslandi. Umsækjandi þarf að hafa sérstakan áhuga á fuglalíffræði og vistfræði. Viðkomandi ætti einnig að vera vel fær í útivinnu, hafa mikinn áhuga á náttúru, vera lausnamiðaður, sjálfstæður, þolinmóður, vinna vel með öðrum og vera mjög skipulagður.
Umsækjandinn þarf að hafa reynslu að, eða áhuga á, að vinna með vindorku fyrirtækjum að vistvænum lausnum. Viðkomandi ætti að hafa sterkan bakgrunn í náttúruvísindum og sérhæfingu í fuglafræði, stofnvistfræði eða sambærilegu.
Náttúrustofa Vestfjarða er með aðsetur í Bolungarvík, Hólmavík og á Patreksfirði. Æskilegt væri að viðkomandi myndi búa á Hólmavík en hefur samt sem áður val um þessar þrjár staðsetningar.
Starfið er tímabundið í eitt ár með möguleika á framlengingu að þeim tíma liðnum.
Umsóknarfrestur er til og með 20. Apríl.
Best væri ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst en það er umsemjanlegt.
Sendið kynningarbréf, ferilskrá og meðmæli á sigurdur@nave.is
Hæfniskröfur:
- Góðir skipulags og samskiptahæfileikar er skilyrði.
- Masters gráða í líffræði eða skyldum greinum er skilyrði.
- Reynsla af fuglarannsóknum á vettvangi er skilyrði.
- Líkamleg færni til að stunda krefjandi vettvangsvinnu er skilyrði.
- Góð tölvukunnátta og reynsla við að greina gögn notandi forritið R eða sambærilegt er skilyrði.
- Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum er skilyrði.
- Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á ensku er skilyrði.
- Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og hæfni til að vinna í teymi er skilyrði.
- Þekking á Íslensku eða öðrum norðurlandamálum er kostur.
- Reynsla við rannsóknir á fuglum í tengslum við uppbyggingu vindorku garða notandi “Scottish Natural Heritage” aðferðafræði og/eða ratsjá er kostur.
- Reynsla við að leiðbeina nemendum er kostur.
- Reynsla af stjórnun rannsóknarverkefna og öflun rannsóknarstyrkja er kostur.
- Rannsóknareynsla m.a. með birtingu ritrýndra rannsóknargreina í viðurkenndum tímaritum á fagsviðinu er kostur.
Annað
- Sveigjanlegir vinnutími.
- Velja má einn af þremur vinnustöðum.