Fyrstu vorboðarnir komnir til Vestfjarða
Vorboðarnir eru farnir að láta sjá sig á Vestfjörðum, þar sem heiðlóa, grágæs og heiðagæs hafa nú verið staðfestar á svæðinu. Einnig hafa skógarþröstur og hettumáfur sést, sem undirstrikar að vorið er sannarlega á næsta leiti.
Heiðlóa (Pluvialis apricana) sást við Hólmavík og Barðaströnd 7. apríl og markar það formlega upphaf vorfuglakomunnar í landshlutanum. Heiðlóan er einn þekktasti vorboði landsins og vekur jafnan athygli þegar hún snýr aftur eftir veturinn.

Á sumrin einkennist heiðlóan af svartri bringu og skýrri hvítri rönd, en á haustin hverfa þessi einkenni og fuglinn verður ljósbún drappaður á lit sem líkist meira ungfugli. Vetrarheimkynni lóunnar eru í Vestur-Evrópu, aðallega á Írlandi, en einnig í Frakklandi, á Spáni og í Portúgal, þar sem hún dvelur við strendur og árósa (Fuglavefurinn, e.d.).
Einnig hafa hópar gæsa verið áberandi síðustu vikur. Um 200 grágæsir (Anser anser) sáust á svæðinu milli Önundarfjarðar og Dýrafjarðar, og um 25 heiðagæsir (Anser brachyrhynchus) við Höfða í Dýrafirði.

Grágæs og heiðagæs skipta að mestu með sér búsvæðum hér á landi; heiðagæsin heldur sig fremur á hálendinu en grágæsin á láglendi. Á síðari árum hefur þó orðið vart við að heiðagæsin færist í auknum mæli inn á svæði grágæsarinnar. Báðar tegundirnar hafa vetursetu á Bretlandseyjum, aðallega í Skotlandi og Norður- Englandi (Fuglavefurinn, e.d.).
Ábendingar frá íbúum vel þegnar
Ábendingar frá íbúum um fuglaskoðanir, sem og ljósmyndir af farfuglum og flækingum á svæðinu eru afar verðmætar og hjálpa til við að fylgjast með komu farfugla og breytingum í fuglalífi Vestfjarða. Slíkar upplýsingar nýtast við vöktun og auka þekkingu á náttúru svæðisins.
Slíkar ábendingar sendist til nave@nave.is
