icelandic / english

logo
  • Heim
  • Starfsmenn
  • Þjónusta
    • Umhverfi og vaktanir
    • Fiskeldi
    • Greining og flokkun lífvera
    • Rannsóknasamstarf
  • Um Nave
  • Útgefið efni
  • Atvinna
  • Fréttir
  • Heim
  • Starfsmenn
  • Þjónusta
    • Umhverfi og vaktanir
    • Fiskeldi
    • Greining og flokkun lífvera
    • Rannsóknasamstarf
  • Um Nave
  • Útgefið efni
  • Atvinna
  • Fréttir
logo
  • Heim
  • Starfsmenn
  • Þjónusta
    • Umhverfi og vaktanir
    • Fiskeldi
    • Greining og flokkun lífvera
    • Rannsóknasamstarf
  • Um Nave
  • Útgefið efni
  • Atvinna
  • Fréttir
  • Heim
  • Starfsmenn
  • Þjónusta
    • Umhverfi og vaktanir
    • Fiskeldi
    • Greining og flokkun lífvera
    • Rannsóknasamstarf
  • Um Nave
  • Útgefið efni
  • Atvinna
  • Fréttir
October 25, 2024 by Cristian Gallo Uncategorized 0 comments

Kóngasvarmi á Flateyri

Nemendur Grunnskóla Önundarfjarðar fundu kóngasvarma (Agrius convolvuli) á skólalóðinni þann 9. september síðastliðinn. Fiðrildið var enn lifandi og gerðu krakkarnir allt sem þau gátu til að halda því á lífi. Ekki er skrítið að það hafi ekki tekist til lengdar því eftir að fiðrildi kóngasvarma skríða úr púpu lifa þau einungis í 10-30 daga og hluta þess tíma hafði fiðrildið notað til að ferðast til Flateyrar. Krakkarnir gáfu Náttúrustofunni fiðrildið og fór Cristian til að taka við því. Með í för var hluti skordýrasafns stofunnar sem kóngasvarmanum verður bætt í. Aðrir krakkar munu því geta skoðað hann í framtíðinni þegar þeir koma í skólaheimsókn. Fiðrildið er stórt en vænghaf tegundarinnar verður allt að 12 cm og því gaman að bera það saman við íslensku fiðrildin.

Venjulega berast til landsins 1-2 kóngasvarmar á ári en árið 1995 var þó metár þegar 15 fundust. Þrátt fyrir að þeir hafi fundist í öllum landshlutum hafa langflestir sést á sunnanverðu landinu (Erling Ólafsson og Hálfdán Björnsson 1997). Árið 2013 bárust Náttúrustofunni 2 kóngasvarmar sem fundust á Þingeyri en síðan þá höfum við ekki frétt af neinum á Vestfjörðum fyrr en nú.

Upplýsingar um komur kóngasvarma fengnar úr
Erling Ólafsson & Hálfdán Björnsson 1997. Fiðrildi á Íslandi 1995. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 32. 136 bls.

Nemendur Grunnskóla Önundarfjarðar sem tóku á móti starfsmanni Náttúrustofunnar. Fyrir aftan lengst til vinstri er Brimar Helgi með kóngasvarmann þá Benedikt Einar, Sólveig Erla, Izabela og Kamil. Í fremri röð eru þeir Kristján Pétur, Valdemar Leó og Skarphéðinn Snær.

Náttúrustofuþing Samtaka náttúrustofa 2. október 2024Previous Post
Vöktun sjávarlúsa á villtum laxfiskum á Vestfjörðum 2024 / Wild Salmonid Sea Lice Monitoring in the Icelandic Westfjords 2024Next Post

SIGN UP FOR NEWSLETTER

Received our latest updates

Höfuðstöðvar

Aðalstræti 12
415 Bolungarvík
456-7005
nave@nave.is
Kt: 610397-2209

Á Ströndum/Reykhólum

Höfðagötu 3
510 Hólmavík
456-7005
nave@nave.is

Á sunnanverðum Vestfjörðum

Vatneyrabúð
Aðalstræti 1
450 Patreksfjörður
456-7005

Í fornleifafræði

456-7005
fornleifar@nave.is

Created by Techstate.is

© 2025 Nave. All rights reserved