Ný stjórn Náttúrustofu Vestfjarða
Ársfundur Náttúrustofu Vestfjarða var haldinn síðasliðinn miðvikudag, 30. September þar sem aðildarfélög stofunnar komu saman, ásamt starfsfólki og Vestfjarðastofu. Starf og hlutverk náttúrustofa var kynnt og farið yfir ársreikninga og ársskýrslu 2025 og helstu verkefni á árinu 2026. Farið yfir störf samtaka náttúrustofa (SNS) ásamt kynningu á stöðu Náttúrustofu Vestfjarða og stjórn þess síðan stofan var stofnuð.
Stjórnarskipti fóru fram á fundinum en Smári Haraldsson, fráfarandi formaður og Cathreine P. Chambers gáfu ekki kost á sér í áframhaldandi stjórnarsetu. Smári hefur verið formaður stjórnar Náttúrustofu Vestfjarða síðan 2017. Smári sat einnig í stjórn NAVE frá upphafi til ársins 2007. Catherine hefur setið í stjórninni síðan 2022. Við þökkum þeim innilega fyrir þeirra framlag til Náttúrustofunnar og óskum þeim velfarnaðar. Í varastjórn voru Matthías Lýðsson (f.h) Strandabyggðar (varaformaður), Guðrún Anna Finnbogadóttir (f.h.) Vesturbyggðar og Bragi Thoroddsen (f.h.) Súðavíkurhrepps. Þau gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi setu og þökkum við þeim fyrir þeirra framlag.

Fráfarandi stjórn ásamt forstöðumanni: Lilja Magnúsdóttir (t.v.), Smári Haraldsson, Hulda Birna Albertsdóttir og Catherine P. Chambers.
Lilja Magnússdóttir var kosinn nýr formaður stjórnar, en hún hefur setið í stjórn stofunnar síðan 2022, svo hún þekkir starfið og er ánægulegt að hún hafi gefið kost á sér til þess. Auk hennar var Hlynur Reynisson (f.h.) Ísafjarðarbæjar og Þorbergur Haraldsson (f.h.) Bolungarvíkurkaupstaðar kosnir sem aðalmenn. Nýjir varamenn í stjórn eru Jón Örn Haraldsson (f.h) Strandabyggðar, Þorkatla Soffía Ólafsdóttir (f.h) Vesturbyggðar og Elísabet Margrét Jónasdóttir (f.h.) Súðavíkurhrepps.

Ný stjórn Náttúrustofunnar ásamt forstöðumanni: Þorbergur Haraldsson (t.v), Lilja Magnúsdóttir (nýr formaður), Hulda Birna Albertsdóttir, Hlynur Reynisson og Elísabet Margrét Jónasdóttir.
Read MoreÁrsskýrsla 2025
Ársskýrsla 2025 er komin út og má sjá þar að starfsárið var, að venju, stútfullt af fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum. Farið var víða um land í úttektir og rannsóknir á gróðri, vistgerðum, fuglalífi, ferskvatns lífi og botndýralífi, auk fjölda fornleifaúttekta. Ársskýrsluna má nálgast hér.

Náttúrustofan fær verðlaun fyrir kennslu í vettvangsskóla
Á dögunum var haldin verðlaunahátiðin Career impact award 2025 í Bradford Háskóla í Englandi. Fornleifadeild Náttúrustofu Vestfjarða var tilnefnd til verðlauna ásamt 4 öðrum stofnunum. Verðlaunin komu svo í hlut Náttúrustofu Vestfjarða. Verðlaunin hlýtur fornleifadeild fyrir framúrskarandi kennslu í vettvangsskóla sem hefur verið starfræktur í tengslum við fornleifa rannsóknina Arnarfjörður á miðöldum á Auðkúlu og Hrafnseyri undanfarin ár. Þetta er mikil viðurkenning fyrir fornleifadeildina sem lagt hefur mikla áherslu að bjóða upp á vandaða og góða kennslu fyrir nemendur Bradford háskóla.



Herfugl sást á Ströndum
Herfugl (Upupa epops) sást á Stöndum á milli Krossness og Fells í gær, 22. september. Herfugl er sjaldséður flækingsfugl og sást nú í fornleifaúttekt á svæðinu. Síðast er vitað til að hafi sést til Herfugls á Íslandi í apríl (sjá frétt MBL).
A Hoopoe (Upupa epops) was seen on the shores between Krossnes and Fell yesterday, September 22. The hoopoe is a rare vagrant in Iceland and was spotted during an archaeological survey in the area. The last recorded sighting of a hoopoe in Iceland was in April (see news report in MBL).


Ársskýrsla Náttúrustofu Vestfjarða 2024
Ársskýrsla Náttúrustofu Vestfjarða 2024 er komin út og má finna hana hér.

Náttúrustofuþing samtaka náttúrustofa (SNS) verður haldið í Bolungarvík 2. október 2024
Gestgjafar þingsins að þessu sinni eru Náttúrustofa Vestfjarða í samvinnu við Samtök Náttúrustofa (SNS). Þingið verður opið almenningi og gefst gestum tækifæri á að hlýða á fjölbreytt erindi starfsmanna náttúrustofa landsins og gestafyrirlesara.
Gert er ráð fyrir að þingið hefist klukkan 13:00 og að því ljúki með vettvangsferð um kl. 16:30 og síðan verði sameiginlegur kvöldverður í Félagsheimilinu í Bolungarvík.Ókeypis er inn á þingið en æskilegt er að þátttaka tilkynnist í netfangið huldaba@nave.is fyrir 24. September svo gera megi ráðstafanir með hádegismat, kaffi og rútuferð.
Dagskrá þingsins verður birt þegar nær dregur.
Vonumst til að sjá sem flesta!
Samtök náttúrustofa (SNS)
Read More
Ársskýrsla Náttúrustofu Vestfjarða 2023
Ársskýrsla Náttúrustofu Vestfjarða er komin út og má nálgast hér og undir útgefið efni 2023.


Ársskýrsla Náttúrustofu Vestfjarða 2021 komin út
Ársskýrsla Náttúrustofu Vestfjarða 2021 er komin út og mun eingöngu verða birt á rafrænu formi. Skýrsluna má finna með því að ýta á myndina og undir útgefið efni.


Náttúrustofan í tengslum við LBHÍ og Vegagerðina með námskeið í endurheimt staðargróðurs
Í tengslum við vegagerðina um Teigskóg hefur Hulda Birna Albertsdóttir í samstarfi við Steinunni Garðarsdóttir hefur unnið leiðbeiningar um hvernig standa eigi að endurheimt staðargróðurs vegna vegaframkvæmda frá þverun Þorskafjarðar að Hallsteinsnesi. Í framhaldi að útboði á framkvæmdinni héldu þær námskeið fyrir starfsfólk Borgarverks í samstarfi við Vegagerðina og Landbúnaðarháskóla Íslands en Borgarverk hefur skrifað undir samning um framkvæmd verksins.
Á námskeiðinu fór Páll Valdimar Kolka verkefnastjóri hjá Vegagerðinni yfir umhverfisstefnu Vegagerðarinnar og áherslur við endurheimt staðargróðurs. Steinunn Garðarsdóttir fór yfir það hvers vegna staðargróður og hvers ber að gæta við endurheimt í tengslum við vegagerð. Hulda Birna Albertsdóttir fór yfir forsendur verklýsinga fyrir endurheimt staðargróðurs í vegagerð um Teigskóg. Einnig ræddu G.Reynir Georgsson um verklýsingar og Guðmundur Ingi Guðmundsson um tæknileg atriði.

Kostnaður sem fylgir vegframkvæmdum og viðhaldi vega hefur alltaf verið vel þekktur, en á seinni árum er i auknum mæli farið var að beina sjónum að þeim tilkostnaði sem fylgir því að lágmarka umhverfisáhrifin sem vegir hafa og viðhalda heilbrigði vistkerfanna sem vegir liggja um. Í því sambandi hefur síðust árin orðið mikil vakning á að nýta gróðurinn á framkvæmdasvæðum til að græða upp rask af völdum framkvæmda, með það að markmiði að draga úr áhrifum umhverfi og gæta þess að frágangur falli vel að landslaginu. Eyðing og uppbrot búsvæða talin ein helsta ógn við líffræðilega fjölbreytni í heiminum. Við búum á tímum þar sem öfgar í loftslagsbreytingum eru miklar og tap á líffræðilegri fjölbreytni hefur aldrei verið meiri. Eyðing og uppbrot á búsvæðum er í dag talin vera langstærsta ógn við tegundafjölbreytni í heiminum, en ein af hverjum fjórum plöntutegundum er talin vera í útrýmingarhættu. Vegna þessa berum við mikla ábyrgð að ganga vel frá röskuðum svæðum og reyna lágmarka það rask sem við þurfum að beita á lífríki og landslag, og er endurheimt staðargróðurs á röskuðum svæðum ein leið til þess. Eyðing vistkerfa getur hins vegar aldrei réttlætt endurheimt vistkerfa, þótt það geti vissulega lágmarkað raskið.
Aðferðirnar sem notaðar eru í þessum leiðbeiningum eru töluvert nýjar á nálinni á Íslandi á þessari stærðargráðu en gerðar hafa verið þó nokkrar rannsóknir og tilraunir í tengslum við vegagerð með svona aðferðum hérlendis og til dæmis í Noregi. Þær hafa sýnt fram á góðan árangur á notkun gróðurtorfa og svarðlags við uppgræðslu framkævmdarsvæða. Aðferðirnar sem notaðar verða snúa að því að nýta allt lífrænt efni sem leggst til við framkvæmdirnar, bæði efsta lag jarðvegsins (svarðlag) og flytja gróðurtorfur úr vegstæði og leggja aftur niður í vegfláa og skeringarsvæði.
Í verkinu verða verktakar bundnir því að raska ekki gróðri utan við eiginlegt framkvæmdarsvæði og hafa verið settar mjög skýrar vinnureglur við framkvæmdina til þess að verja sem best svæði utan við framkvæmdarsvæðið og þann mikilvæga gróðurmassa sem er undir fyrirhuguðum vegi sem best. Þetta er gert þar sem verið er að fara í gegnum landsvæði sem er á verndarsvæði og hefur mjög hátt verndargildi.
Námskeiðið var vel sótt og verður framkvæmdin á endurheimt staðargróðursins þróuð í samvinnu við verktakana og þá sem vinna verkið og Vegagerðina.
Á námskeiðinu fór Margrét Hallmundsdóttir einnig yfir svæði þar sem fornleifar hafa fundist og hvernig verktakar eiga að bregðast við ef þeir rekast á áður óþekktar minjar.


