Ársfundur Náttúrustofu Vestfjarða var haldinn síðasliðinn miðvikudag, 30. September þar sem aðildarfélög stofunnar komu saman, ásamt starfsfólki og Vestfjarðastofu. Starf og hlutverk náttúrustofa var kynnt og farið yfir ársreikninga og ársskýrslu 2025 og helstu verkefni á árinu 2026. Farið yfir störf samtaka náttúrustofa (SNS) ásamt kynningu á stöðu Náttúrustofu Vestfjarða og stjórn þess...Read More
Ársskýrsla 2025 er komin út og má sjá þar að starfsárið var, að venju, stútfullt af fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum. Farið var víða um land í úttektir og rannsóknir á gróðri, vistgerðum, fuglalífi, ferskvatns lífi og botndýralífi, auk fjölda fornleifaúttekta. Ársskýrsluna má nálgast hér.
Read More
Vorboðarnir eru farnir að láta sjá sig á Vestfjörðum, þar sem heiðlóa, grágæs og heiðagæs hafa nú verið staðfestar á svæðinu. Einnig hafa skógarþröstur og hettumáfur sést, sem undirstrikar að vorið er sannarlega á næsta leiti.
Heiðlóa (Pluvialis apricana) sást við Hólmavík og Barðaströnd 7. apríl og markar það formlega upphaf vorfuglakomunnar í landshlutanum. Heiðlóan er einn þekktasti...Read More
Náttúrustofur víðsvegar um landið gegna lykilhlutverki í rannsóknum, vöktun, fræðslu og ráðgjöf um íslenska náttúru, auk þess að vera árangursrík byggðaaðgerð sem skapar störf fyrir háskólamenntað fólk á landsbyggðinni. Þrátt fyrir það hefur grunnframlag ríkisins til náttúrustofa lækkað verulega milli ára og er enn um þriðjungi lægra en það var fyrir efnahagshrunið 2008 (sjá graf)....Read More
Á dögunum var haldin verðlaunahátiðin Career impact award 2025 í Bradford Háskóla í Englandi. Fornleifadeild Náttúrustofu Vestfjarða var tilnefnd til verðlauna ásamt 4 öðrum stofnunum. Verðlaunin komu svo í hlut Náttúrustofu Vestfjarða. Verðlaunin hlýtur fornleifadeild fyrir framúrskarandi kennslu í vettvangsskóla sem hefur verið starfræktur í tengslum við fornleifa rannsóknina Arnarfjörður á...Read More
Herfugl (Upupa epops) sást á Stöndum á milli Krossness og Fells í gær, 22. september. Herfugl er sjaldséður flækingsfugl og sást nú í fornleifaúttekt á svæðinu. Síðast er vitað til að hafi sést til Herfugls á Íslandi í apríl (sjá frétt MBL).
A Hoopoe (Upupa epops) was seen on the shores between Krossnes and Fell yesterday, September 22. The hoopoe is a rare vagrant in Iceland and was...Read More