May 17, 2022 Uncategorized
Rannsóknir í tengslum við vegagerð um Teigskóg
Náttúrustofan hefur lengi unnið í rannsóknum í tengslum við umhverfismat vegna fyrirhugaðra vegaframkvæmda frá Bjarkalundi að Skálanesi, svokallaða Teigskógarleið. Í tengslum við framkvæmdarleyfi Reykhólahrepps vegna veglagningarnar voru gerðir ýmsir skilmálar. Einn af þeim skilmálum var að halda úti vöktun á ákveðnum þáttum í tengslum við áhrif vegagerðarinnar á strauma og dýralíf....Read MoreMarch 24, 2022 Uncategorized
Hvítur Snjótittlingur í Súðavík
Sjaldgæfur hvítur snjótittlingur hefur haldið til í Súðavík síðastliðnar tvær vikur í föruneyti 400 fugla sömu tegundar. Fyrir utan nokkrar dökkar skellur á vængjum og baki er fuglinn nánast alhvítur, fætur appelsínugulir ólíkt dökkum fótleggjum tegundarinnar og augun dökk. Af þessu má áætla að hvíti liturinn stafi ekki af albínisma sem orsakast af algjörum skorti litarefnisins melanín,...Read MoreFebruary 9, 2022 Uncategorized
Vetrarfuglatalningu lokið
Nú hefur árlegu vetrarfuglatalningum á Vestfjörðum verið lokið. Talningar á fuglum yfir vetrartímann hófust 1952 og er þetta því ein lengsta samfellda vöktun sem stunduð hefur verið hér á landi. Náttúrufræðistofnun Íslands sér um verkefnið í samstarfi við Náttúrustofur landsins, en talningar eru að mestu framkvæmdar af fuglaáhugamönnum í sjálfboðavinnu. Markmið vetrarfuglatalninga er að...Read MoreDecember 1, 2021 Uncategorized
Umfangsmikil rannsókn á tíðni og álagi sjávarlúsa á villtum laxfiskum
Rannsókn á tíðni og álagi laxa- og fiskilúsa á villtum laxfiskum fékk veglegan styrk í ár og rannsóknir hefjast á næstu dögum. Árið 2017 var gerð umfangsmikil rannsókn á sjávarlúsum á villtum laxfiskum á Vestfjörðum, rannsóknin náði til Patreksfjarðar, Tálknafjarðar, Arnarfjarðar, Dýrafjarðar, Önundarfjarðar, Súgandafjarðar og Nauteyri og Kaldalón í Ísafjarðardjúpi. Í ár verður farið í þessa...Read MoreApril 2, 2021 Uncategorized
Viðtöl við fyrirtæki um umhverfismál
Æskilegt væri því að kynna vottunina betur. Þá gætu fyrirtæki geti nýtt sér hana betur við markaðsetningu. Einnig mættu sveitarfélög flagga eða merkja sín svæði betur til að vekja athygli ferðamanna þegar þeir koma inn á EarthCheck vottað svæði. Inni á Vestfirdir.is eru upplýsingar um vottunina og almennt um umhverfismál á facebook, Náttúrulega Vestfirðir. En meira þarf auðsjáanlega til að ná...Read MoreApril 2, 2021 Uncategorized
Skógarmítlar fundust á ketti á Ísafirði
Þeir valda oftast ekki skaða og það finnst lítið fyrir þeim þótt þeir komi sér kirfilega fyrir í efsta lagi húðarinnar. Ef hins vegar mítillinn hefur bitið áður og ber með sér lyme-sjúkdóm þá er æskilegt að leita læknis eins fljótt og hann finnst. Einkenni sýkingar er roði í húðinni í kringum mítilinn. Þetta er þó afar sjaldgæft. Fréttablaðið 18. júní 2020 vitnar í eldra viðtal:...Read MoreApril 2, 2021 Uncategorized