Glókollur verpir í Tunguskógi
Glókollur hefur sést nokkrum sinnum á Vestfjörðum síðustu ár. Fuglarnir hafa sést jafnt að sumri sem vetri en varp hefur ekki verið staðfest á svæðinu fyrr en nú. Hlynur Reynisson var á göngu í Tunguskógi í byrjun ágúst þegar hann fann 2 dauða unga sem höfðu fallið úr hreiðri, líklega í roki. Margir glókollar sáust á svæðinu.Glókollur er nýjasti og jafnframt minnsti varpfugl landsins en varp...Read More
Teistu talningar í Vigur og Æðey
Á fyrstu tveimur vikum maímánaðar lauk Náttúrustofa Vestfjarða þriðju árlegu athuguninni á teistubyggðum í Vigur. Í ár var Æðey einnig bætt við vöktunarverkefnið sem hófst árið 2022 og voru fjórar talningar framkvæmdar í Vigur og tvær í Æðey. Áður en varp hefst safnast teistur (Cepphus grylle) þétt saman við varpstöðvarnar, bæði í dagrenningu og ljósaskiptum, og eiga í samskiptum sín...Read More
Ársskýrsla Náttúrustofu Vestfjarða 2023
Ársskýrsla Náttúrustofu Vestfjarða er komin út og má nálgast hér og undir útgefið efni 2023. Read More
Bjargfuglavöktun á Vestfjörðum
Starfsmenn Náttúrustofunnar störtuðu fuglavinnu sumarsins með uppsetningu eftirlitsmyndavéla við Látrabjarg. Myndavélar á Látra- og Hornbjargi eru notaðar við Bjargfuglavöktun en á hverri klukkustund taka vélarnar mynd af sama hluta bjargsins og fuglunum sem þar eru. Read More
Heiðlóa og aðrir farfuglar
Þrjár heiðlóur sáust við Haganes í Skutulsfirði, laugardaginn 20 apríl og í vikunni sáust einnig tveir hrossagaukar. Undanfarið hefur bæst við þá stelka og hettumáfa sem höfðu vetursetu í firðinum. Í Dýrafirði hafa 15 helsingjar sést undanfarið en Bernarður Guðmundsson sá þá fyrst 8 apríl. Þá hefur álftum og grágæsum verið að fjölga víðsvegar á Vestfjörðum. Read More