![](https://nave.is/wp-content/uploads/2023/04/DSC_7046_cropped.jpg)
Vorið er að koma!
Heiðlóa (Pluvialis apricaria) sást á sunnanverðum Vestfjörðum um miðjan dag síðastliðinn sunnudag 2. apríl af Cristian Gallo. Það var kærkomin sjón, því í íslenskum þjóðsögum er sagt að tilkoma þessa vaðfugls marki upphaf vors. Heiðlóa hefur vetursetu í Vestur- og Suður-Evrópu og allt suður til Marokkó. Á sumrin verpir um það bil helmingur heiðlóustofn heimsins á Íslandi sem gerir heiðar...Read More![](https://nave.is/wp-content/uploads/2023/03/2.jpg)
Stuttar fréttir: Glókullur sést á Ísafirði
Glókollur (regulus regulus) sást á Ísafirði í síðustu viku. Hann er minnsti fugl Evrópu og þá jafnframt minnsti fugl Íslands. Þó að það séu lítil samfélög þessara fugla í kringum Ísland (um 1000-2000 einstaklingar alls), sem kjósa frekar greniskóga, er þetta í fyrsta sinn sem vitað er um hann á norðanverðum Vestfjörðum. Myndirnar voru teknar af Önnsku Ólafsdóttur á Ísafirði. Upplýsingar...Read More![](https://nave.is/wp-content/uploads/2023/03/DJI_0024-scaled.jpg)
Ársreikningur Náttúrustofu Vestfjarða fyrir árið 2022
Ársreikningar Náttúrustofu Vestfjarða fyrir árið 2022 voru samþykktir á stjórnarfundi miðvikudaginn 1. mars s.l. Velta stofunnar árið 2022 var um 147 milljónir króna. Umsvifin hafa farið vaxandi undanfarin ár og afkoman batnað þannig að tekjur hafa verið nokkru meiri en gjöld. Fjárhagsstaða stofunnar hefur batnað sem því nemur. Árið 1997 var fyrsta rekstrarár Náttúrustofunnar. Síðan þá til...Read More![](https://nave.is/wp-content/uploads/2023/02/Leirufjordur-scaled.jpeg)
Sjógöngufiskar og laxalýs í Jökulfjörðum
Náttúrustofa Vestfjarða kannaði sjávarlúsaálag á villtum laxfiskum í Leirufirði í Jökulfjörðum sumarið 2021 með styrk frá Fiskræktarsjóði. Með því að kanna sjávarlúsaálag á svæði þar sem ekkert laxfiskaeldi er til staðar er hægt að fá fram upplýsingar um náttúrulegt sjávarlúsaálag. Með því að bera saman grunngögn um náttúrulegt sjávarlúsaálag sem safnað er núna við gögn sem safnað verður í...Read More![](https://nave.is/wp-content/uploads/2023/01/pica16747454094134-scaled.jpg)
Vetrarfuglatalningu 2022 lokið
Nú hefur árlegu vetrarfuglatalningunum á Vestfjörðum verið lokið. Markmið verkefnisins er að safna upplýsingum um fjölda og dreifingu fugla að vetrarlagi. Talningarnar hófust árið 1952 og er þetta því ein lengsta samfellda vöktun sem stunduð hefur verið hér á landi. Náttúrufræðistofnun Íslands er með yfirumsjón með verkefninu á landinu öllu í samstarfi við sjálfboðaliða og Náttúrustofur...Read More![](https://nave.is/wp-content/uploads/2022/07/image-e1656952891568.png)
Greining og sýnataka af hvalreka við Hringsdal í Arnarfirði
Náttúrustofu barst tilkynning þann 4. júlí um hvalreka í flæðarmáli við Hingsdal í Arnarfirði. Erfitt var að tegundagreina hvalinn af fyrstu myndum sem bárust. En stuttu seinna bárust aðrar myndir frá Veigu Grétarsdóttur, en með dróna náði hún myndum úr lofti og með þeim var auðvelt að greina helstu sérkenni hnúfubaks. Eitt helsta tegundareinkenni hnúfubaka eru sérstaklega löng...Read More![](https://nave.is/wp-content/uploads/2022/05/cover-arsskyrsla-2021.png)